Zendesk Premier Partner á Íslandi

Við einföldum þjónustu.

Með öruggum og margreyndum tólum spörum við tíma og peninga á meðan kröfur á þjónustu aukast.

Í samstarfi við

Stofnanir, sveitarfélög og fyrirtæki sem treysta Vertis fyrir þjónustunni sinni.

Fyrir hverja

Þarfirnar eru ólíkar

Hvað lýsir þinni starfsemi best?

Þjónusta sem vex með fyrirtækinu

Tölvupóstur, vefspjall, sími og samfélagsmiðlar í einni röð – með sjálfvirkni og gervigreind sem stytta svartíma án þess að fela fólkið.

  • Allar rásir í einni biðröð, forgangsraðað eftir því sem skiptir máli fyrir þig.
  • Örugg gervigreind með aðgengi að þínum upplýsingum.
  • Mælingar sem segja þér hvernig gengur.
  • Samþættingar við kerfin þín spara tíma og auðvelda sjálfsafgreiðslu.
Ríkið

Zendesk er kerfið sem Stafrænt Ísland valdi til að umbreyta þjónustu ríkisins. Tugir stofnana nota það í dag og sveitarfélögin eru byrjuð.

1.200+

Tilbúnar samþættingar við kerfin sem þú notar nú þegar – og við smíðum þær sem vantar.

Á íslensku

Ráðgjöf, uppsetning, þjálfun og þjónustuvefur – allt á íslensku, af fólki sem þekkir íslenska stjórnsýslu.

Þjónusta

Frá fyrsta samtali til daglegs reksturs

Þú velur hversu mikið við gerum. Handleiðsla, full innleiðing eða millivegur sem hentar þér – og við erum ekki farin þegar kerfið fer í loftið.

Innleiðing Zendesk

Fáðu handleiðslu frá okkur, láttu okkur sjá um innleiðinguna að fullu eða finnum milliveg sem hentar þér best. Hvor leiðin sem er, þú kemst hratt í gang.

Heilsutékk

Förum yfir hvernig þú notar Zendesk í dag – stillingar, verkferla og mælingar – og hvað er hægt að gera til að fá sem mest út úr kerfinu.

Ráðgjöf um næstu skref

Fólkið skiptir mestu máli, því næst gögnin og síðast kerfin. Við teiknum upp framtíðarmyndina með þér og skrefin til að komast þangað.

Rekstur og stuðningur

Við kíkjum reglulega í heimsókn eða höldum utan um rekstur Zendesk fyrir þig, þjálfum nýtt starfsfólk og greinum árangur.

Viðbætur og samþættingar

Tilbúnar viðbætur eða sérsmíðaðar lausnir: verkferlar, rafræn auðkenning, undirskriftir og tengingar við önnur kerfi. Apps by Vertis.

Þjálfun í gervigreind

Námskeið fyrir vinnustaði um hagnýtingu gervigreindar í þjónustu – og hvernig starfsfólk notar hana á öruggan hátt í vinnunni.

Aðferð

Þjónustan fyrst, kerfið svo.

Við byrjum aldrei á stillingum. Við byrjum á því að skrá hvaða þjónustu þú veitir, hverjum og hvernig – og látum kerfið fylgja.

Hver þjónusta er skilgreind með fimm atriðum: hvað kemur inn, um hvaða rás, hvaða hópur tekur við, hvaða upplýsingar þarf og hvað telst lokið. Þegar það liggur fyrir er uppsetningin að mestu leyti afleiðing.

  1. Spurningalisti

    Þú svarar stuttum spurningalista um þjónustuna, rásirnar og fólkið. Svörin eru vísbendingar, ekki fyrirmæli – við lesum á milli línanna.

  2. Þjónustulisti

    Við teiknum upp hverja þjónustu fyrir sig og forgangsröðum: hvað fer í loftið fyrst og hvað bíður.

  3. Hönnun og rýni

    Við leggjum til uppsetningu byggða á bestu venjum og reynslu úr íslenskri stjórnsýslu. Þar sem við víkjum frá óskum þínum segjum við hvers vegna.

    Frávik eru dagskrá hönnunarfundarins. Þú sagðir X, við leggjum til Y – og hér er ástæðan.

  4. Uppsetning

    Zendesk er sett upp eftir samþykktri hönnun: hópar, eyðublöð, sjálfvirkni, þjónustustig (SLA), fjölvar og samþættingar.

  5. Prófanir og afhending

    Hver þjónusta er prófuð frá fyrstu snertingu til lausnar áður en starfsfólkið tekur við – með handbók sem lýsir nákvæmlega því sem var sett upp.

Zendesk

Hryggjarstykkið í þjónustu

Starfsfólkið vinnur sem ein heild þegar það hefur aðgang að réttum upplýsingum á réttum tíma. Öll samskipti á einum stað – ekkert týnist í tölvupósti hjá starfsfólki í fríi.

Allir með sömu gögn

Öll samskiptasagan á einum stað, aðgengileg þeim sem þurfa – og örugg.

Gervigreind fyrir fólk

Tæknin þar sem hún á við: til að flýta svörum og styðja ákvarðanir, ekki til að fela fólkið.

Tengdu kerfin saman

Með réttum samþættingum klárar starfsfólk málin hratt og viðskiptavinir fá réttu upplýsingarnar strax.

Innri þjónusta líka

Mannauður, fjármál og upplýsingatækni: sjálfsafgreiðsla og aðgengi að upplýsingum fyrir starfsfólk.

Sjáðu alla myndina

Um Vertis

Þar sem þjónusta og tækni mætast

Vertis er íslensk ráðgjafarstofa og samstarfsaðili Zendesk. Við erum með þér í liði við innleiðingu, hagnýtingu gervigreindar og sjálfvirkni – og við ákvarðanir um næstu skref til að bæta þjónustu á hagkvæman hátt.

Við trúum því að góð þjónusta byrji á fólki, haldi áfram með gögnum og endi á kerfum. Þess vegna spyrjum við fyrst hvað þú vilt gera fyrir þína viðskiptavini – og stillum svo kerfið eftir því.

Fyrirtæki
Vertis ehf.
Kennitala
690923-0330
Hlutverk
Samstarfsaðili Zendesk á Íslandi
Þjónustuvefur
pdi-vertis.zendesk.com
Netfang
vertis@vertis.is
Sími
+354 825 6165
Hafa samband

Tölum saman

Bókaðu stutt samtal, sendu okkur póst eða stofnaðu mál á þjónustuvefnum okkar – já, hann keyrir á Zendesk.